Tuesday, May 1, 2012

K L Á M M Y N D

Myndir sem sanna allt fengu þunglyndiskast þegar við komumst að því að síðan var ekki vinsælasti fjölmiðill á Íslandi, þrátt fyrir gífurlega jákvæð viðbrögð frá yfirlýsingaglaðasta manni Íslands.



Við höfum tekið þann þroskaða pól í hæðina að hlusta ekki á gagnrýnisraddir (neikvæðar), eða ósamvinnuþýtt fólk, en hafa eftirleiðis eingöngu samskipti við þá sem sýna okkur fullan samstarfsvilja. Þetta efldi sjálfstraust okkar til muna og gaf okkur byr undir báða vængi. Við fylltumst trú á verkefni sem hefur lengi legið í bígerð sem við ætlum að hrinda í framkvæmd samstundis. Rétt í þessu sendum við 35 stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins styrkbeiðni. Þar á meðal: Actavis, Landsvirkjun, KFC, Þjóðkirkjunni, Vífilfelli, Flugleiðum, 66°Norður, World Class, Íslenskri erfðagreiningu og Grænum kosti. Beiðnin er svohljóðandi:


K L Á M M Y N D
- eftir Uglu Egilsdóttur og Sögu Garðarsdóttur


Við ætlum að taka K L Á M M Y N D upp í Hörpunni. Hér á eftir fylgir stutt lýsing á söguþræði myndarinnar:

Fimleikadrottning sýnir listir sínar uppi á sviði. Áhorfendur ærast. Einn áhorfandi er svo graður að hann hleypur upp á svið. Hann reynir hvað eftir annað að sofa hjá henni. En hún er of fim og hann er of æstur, svo hann hittir aldrei.

Helst myndum við vilja fá Ilmi Kristjánsdóttur í hlutverk fimleikadrottningarinnar og Gunnar Hansson í hlutverk æsts áhorfanda. Við höfum ekki enn fengið formlegt vilyrði leikaranna, en það er á viðræðustigi. Að auki þurfum við um 1000 statista til að leika áhorfendur, aðallega karlmenn í ofþyngd. Gaukur Úlfarsson leikstýrir myndinni og Snorri Helgason sér um kvikmyndatónlist. Við þurfum 100 milljónir til að gera myndina. Erum þegar búnar að tryggja fjármagn upp á 30 þúsund krónur frá Laugarásvídjói. Við biðlum því til ykkar með þessar 99.970.000 krónur sem upp á vantar.

Með von um jákvæð viðbrögð,
Ugla Egilsdóttir og Saga Garðarsdóttir.

No comments:

Post a Comment