Friday, April 6, 2012

Fréttamiðill sem tekur sig mjög alvarlega

Lof mér að kynna nýjan fjölmiðil: Myndir sem sanna allt. Hér verða eingöngu birtar æsispennandi fréttir um ástir og örlög. Því sem ekki verður hægt að lýsa með orðum verður tjáð í myndum, og sannleiksgildið sem ekki dugir að sverja fyrir verður staðfest með óhrekjanlegum myndum. „Loksins fjölmiðill sem maður getur treyst“, eru fleyg orð sem eiga án vafa eftir að fjúka. Ekki gera ykkur of miklar vonir, enda er það varla möguleiki í þessu tilfelli. Sendið okkur frekar myndir sem sanna allt og við gerum þær ódauðlegar.

No comments:

Post a Comment